14janúar
Sælar
Er búin að koma mér loksins fyrir og skólinn byrjaður á fullu - SJÆSE - það er og verður sko alveg nóg að gera
Nú er bara að ákveða hittingar helgi sem fyrst
eR EIN í íbúð svo að nóg er plássið - hvernig eru helgarnar 24-25jan - 31-1feb - 7-8 feb og 14- 15 feb hjá ykkur ? Hlakka geðveikt til 
11desember
Sumarbústaðarferð 19. Des. 2008.
Hinn umtalaða ferð okkar nálgast og því þarf að fara plana.
Sumarhús: Bústaður sem Elín reddar eða Villukot!
Matur, eitthvað djúsí og gott á föst. kvöldinu og svo snarl á laug. áður en farið er heim í meira geim!
Eitthvað að drekka.... léttvín, bjór eða sterkt fyrir þær sem vilja. Koma með sjálfar! :)
Bílar, 6 + tveir leynigestir = tveir bílar.
Það verða mjög líkalega tveir litlir leynigestir.... annar 15 mánaða og hinn 8 mánaða! :)
Skemmtiatriði, ????
Svo verðum við að hafa eitthvað svona jóla jóla... baka piparkökur eða gera eitthvað sneddí! :)
06desember
Dúna elskan ætlar að bjóða okkur heim til sín í SUSHI 18 des :) og jafnvel að við höfum e-h jólaþema með, föndrum eða gerum e-h skemmtilegt
veit að margar eru í skóla og svona en pælingin var 500 kr á mann
endilega kommentið hverjar komast og hverjar ekki ;)

03nóvember
JÆJA STÚLKUR, KOMIÐ HEFUR UPP SÚ HUGMYND AÐ VIÐ GEFUM OKKUR TÍMA FYRIR HVOR AÐRA OG HITTUMST Í BRUNCH ANNAÐ HVORT Á LAUGARDAG EÐA SUNNUDAG...ÞÁ GETUM VIÐ HIST ÁSAMT BÖRNUM OG BUMBUM OG HAFT ÞAÐ NOTANLEGT Á ÞESSUM SÍÐUSTU OG VERSTU TÍMUM!
NÚ ÞURFIÐ ÞIÐ EINUNGIS AÐ KOMMENTA HVOR DAGURINN HENTAR YKKUR BETUR OG HVERT YKKUR LANGAR AÐ FARA!!
HLAKKA TIL AÐ FÁ BRJÁLÆÐISLEGA HRESS OG SKEMMTILEG VIÐBRÖGÐ VIÐ ÞESSU BLOGGI... YKKAR BB
14október
Bara að láta ykkur vita að ég verð á norðan megin á landinu eftir áramót ((eftir að hafa meikað það á inntökuprófinu
) að gera allt vitlaust ....... svo að þið eigið lítið sem ekkert eftir að sjá mig eða njóta skemmtilegra samvista við mig,
svo við VERÐUM HREINLEGA að fá þennan hel.... djö.... ands.... böl..... dag saman. Eg HEIMTA ÞAÐ!!!! 
30september
Jæja.... þannig fór um sjóferð þá.
18. okt. Erna úti/Magga busy
25. okt. Elsa Dalvík
1. Nóv. BB vinna
8. Nóv. Villa hestast
15. Nóv.... of sutt í próf!
Árshátíð hefur verið frestað... Gengur betur næst! 
29september
Jæja.... það virðist ætla vera góð mæting í þessa ROSALEGU ÁRSHÁTÍÐAR ferð... er búin að skipulegga ROSALEGT game!!!!! Þvílík snilld sem þetta verður. En nú verð ég að fara panta og gera ráðstafanir. Þannig að það er spurning með fasta dagsetningu. 8. Nóv. er það nýjasta. Komast allar þá???
Þetta mun taka allan daginn og á ekki að kosta meira en 8000 þús. En gera skal ráð fyrir því að þetta kosti um 8000 þús, gæti orðið ódýrara!
STELPUR.... BARA EF ÞIÐ VISSUÐ HVAÐ VIÐ ERUM AÐ FARA GERA!!!!!
BAAAAHAHAHAHAH...
SNILLD.....
27september
Árshátíð....
Hjálpi mér allir heilagir. Var að fá þær fréttir í hús að "árshátíðin" okkar verður nú í lok október. Þetta verður víst eitt svaðalegasta skemmtun sem sögur fara af. Mér skilst að fólk sé farið að setja sig í stellingar og búist við svipuðu partýi og var hér um árið þar sem Silvía Nótt og hornið á Óliver voru í aðalhlutverki og ekki má gleyma borðunum góðu. HOW LAME!!!!!! En fólk má alveg láta sig dreyma.... það partý verður aldrei toppað!!!! Alveg sama hvaða beyglur reyna! ;)
Við munum byrja snemma á laug.morgni. þann 1. Nóv. með fordrykk. Því næst verður haldið (MEÐ NÓG AF VEIGUM Í NESTI) á vit ævintýranna í eina mögnuðust ferð sem sögur fara af. Búið er að redda bílstjóra og stórum bíl þannig að allar komast fyrir. Þegar heim verður komið munum við skella okkur saman í sund/baðhúsið þar sem við munum gera okkur sæmilegar fyrir kvöldið. Því næst mun bíða okkur kvöldmatur og NÓG af veigum í heimahúsi mjög líklega NORÐURBRÚ 3.
Pakkinn mun vonandi ekki kosta meira en 5000 til 8000 þús.
Við eigum þetta svo sannarlega skilið elskurnar mínar að eyða saman heilum degi og ég skal lofa ykkur VIÐBJÓÐSLEGRI skemmtun!!!!!


16september
Sælar dömur! Nú er komið að því að hittast og verður það miðvikudagskvöldið 17. september um átta heima hjá mér. Það er Goth þema
Kv. Elsa Hlín
04september
JæJa LInda OfuRPlanNeR er VArlA MæTT á KLakANN Og þÁ Er HÚN bÚIn Að SKIPuLegJA LunCH!!
KRUA THAI Í KÓPAVOGI Á
MORGUN KLUKKAN 12:45....
HLAKKA TIL AÐ SJÁ SEM FLESTA.......
BB